|
Grunnlífeyrir hér aðeins þriðjungur slíks lífeyris í grannlöndunumföstudagur, 1. janúar 2016
|
Grunnlífeyrir almannatrygginga hér er 40 þúsund krónur á mánuði.Í grannlöndum okkar,Noregi,Danmörku,Svíþjóð og Bretlandi er hann 3 sinnum hærri .
Íslendingar voru í fararbroddi almannatrygginga fyrst eftir stríð.En síðan hefur Ísland stöðugt dregist aftur úr á þessu sviði og í dag rekur Ísland lestina.Hvað veldur?Ástæðan er skeytingarleysi stjórnmálamanna á sviði almannatrygginga.Framámenn í íslenskum stjórnmálum í dag virðast telja, að misskilningur.Vissulega má lífeyrir aldraðra vera hærri en lágmarkslaun.Það sýnir einfaldlega, að þjóðfélagið vill gera vel við sína eldri borgara.Röksemd Bjarna Ben.um, að lífeyrir megi ekki vera hár, þar eð þá sé enginn hvati til þess að fara út á vinnumarkaðinn, á ekki við eldri borgara.Eftirlaun verða hins vegar að vera það há, að þau dugi til framfærslu hjá þeim ,sem einungis hafa tekjur almannatrygginga.En svo er ekki i dag.Þar vantar mikið upp á.Sú hungurlús,sem ríkisstjórnin skammtar lífeyrisþegum frá 1.janúar breytir hér engu.Lífeyrir aldraðra á að sjálfsögðu að vera svipaður hér og hann er í grannlöndum okkar.
Jafnhliða stórhækkun grunnlífeyris aldraðra þarf að afnema skerðingu lífeyris hjá TR vegna greiðslna úr lífeyrissjóði. Bjarni fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins lofaði því fyrir síðustu alþingiskosningar að afnema þessa skerðingu. Hann hefur ekki efnt þetta loforð. Það er alvarlegt mál.Stjórnmálamenn geta ekki gefið kjósendum slík loforð án þess að standa við þau. Ef Bjarni efnir ekki þetta loforð strax á hann að segja af sér. Svo einfalt er það.Tekjutengingarnar fara mjög illa með aldraða og öryrkja.Eldri borgari,sem hefur 100 þúsund krónur á mánuði í lífeyri frá lífeyrissjóði, missir sem svarar helmingi þessarar upphæðar frá almannatryggingum. Hvaða réttlæti er í því? Hvers vegna var þessi eftirlaunamaður að greiða i lífeyrissjóð i, ef hann nýtur þess ekki , þegar hann er hættur að vinna? Það verður að afnema þessa skerðingu og það verður að afnema hana strax
Björgvin Guðmundsson
Formaður kjaranefndar FEB+
Birt i Fréttablaðinu 31.des. 2015
.
| Deila � Facebook |
N�justu pistlarnir: Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018 Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018 Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018 Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017 Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017 Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017 Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017 Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017 Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017 Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017 Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016 Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016 Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016 Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016 Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016 Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016 Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016 Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016 Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016 Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016 Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016 Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016 Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016 Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016 Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016 76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016 Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016 Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016 Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016 Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016
|
|