|
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%mánudagur, 2. maí 2016
| Eldri borgari , sem er í sambúð eða hjónabandi, hefur 185 þüsund krónur á
mánuði eftir skatt frá almannatryggingum, ef hann hefur engar aðrar tekjur.
Einhleypur eldri borgari hefur 207 þúsund krónur á mánuði eftir skatt frá
almannatryggingum, miðað við sömu forsendur að því, er tekjur varðar. Þetta
er það, sem ríkisstjórnin skammtar eldri borgurum. Af þessum upphæðum eiga
þessir eldri borgarar að greiða allan sinn kostnað og þar á meðal
húsnæðiskostnað. Leiga getur verið 150 þúsund krónur á mánuði og þá er
lítið eftir fyrir öllum öðrum kostnaði. Það eru 57 þúsund krónur eftir hjá
einhleypingi. Hann á m.ö.o að greiða fyrir rafmagn og hita,mat,
fatnað,samgöngur,sima,tölvukostnað,lyf,lækniskostnað, gjafir o.fl af þessum
57 þúsund krónum!
Ljóst er, að ekki er unnt að reka bíl af svo litlum tekjum. Og hætt við, að
eldri borgarinn verði að sleppa einhverjum fleiri útgjaldaliðum.
Mikil skerðing vegna lífeyrissjóðs
Ef einhleypur ellilífeyrisþegi hefur 50 þúsund krónur á mánuði úr
lífeyrissjóði heldur hann 18 þúsund kr á mánuði af þeirri upphæð eða ígildi
þess. Tryggingastofnun skerðir lífeyri þessa eldri borgara um 32 þúsund á
mánuði, einungis vegna þess að hann greiddi í lífeyrissjóð.Þessa skerðingu
verður að stöðva. Það á auðvitað ekki að refsa þessum eldri borgara fyrir að
hafa greitt í lífeyrissjóð. Eldri borgarinn á að halda lífeyri sínum hjá
Tryggingastofnun óskertum. Hann var einmitt að greiða í lífeyrissjóð til
þess að njóta þess að fullu, þegar hann væri kominn á eftirlaunaaldur.
Ef einhleypur eldri borgari hefur eitt hundrað þúsund krónur á mánuði úr
lífeyrissjóði heldur hann helmingi þeirrar fjárhæðar eða ígildi .TR tekur
helminginn.Það er svipuð skerðing og í fyrra tilvikinu.Ég segi það sama og
áður: Það verður að stöðva þessa skerðingu.Það verður að afnema hana. Þetta
er siðlaus skerðing.
Hvað hækkaði lífeyrir mikið 2016?
Nú hefur "methækkun"allra tíma komið til framkvæmda! Lífeyrir einhleypra
ellilífeyrisþega hækkaði um 15 þúsund krónur eftir skatt.Lífeyrir þeirra
eldri borgara,sem eru í sambúð hækkaði um 13 þúsund krónur.Tölurnar í
þessari grein eru eftir hækkun um áramót.Hækkunin breytir engu.Þetta voru í
kringum 200 þúsund krónur á mánuði áður og þetta eru áfram í kringum 200
þúsund á mánuði. 300 þúsund á mánuði eða rúmlega það er
lágmark.-Lífeyrisþegar fengu miklu meiri hækkun um áramótin 2008/2009 en
nú.Almannatryggingar voru einnig efldar miklu meira 1946 við stofnun
trygginganna (breytingu frá alþýðutryggingum) og 1960, þegar
viðreisnarstjórnin tók við.
30% hækkun yrði viðunandi um skeið
Ef lífeyrir aldraðra og öryrkja verður hækkaður um 30% vegna kjaragliðnunar
hækkar lífeyrir um 73800 kr á mánuði og færi í tæp 320 þúsund krónur á
mánuði. Það er sama tala og kemur út í neyslukönnun Hagstofunnar.Yrði
viðunandi um skeið.
Björgvin Guðmundsson
formaður kjaranefndar FEB
| Deila � Facebook |
N�justu pistlarnir: Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018 Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018 Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018 Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017 Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017 Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017 Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017 Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017 Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017 Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017 Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016 Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016 Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016 Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016 Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016 Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016 Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016 Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016 Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016 Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016 Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016 Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016 Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016 Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016 Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016 76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016 Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016 Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016 Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016 Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016
|
|