Ójöfnuður hefur stóraukist á Íslandi frá 1993
Ríkisskattstjóri reiknaði út vorið 2006 Gini stuðul frá 1993. Í ljós kom,að ójöfnuður á Íslandi hefur aukizt til muna ár fram af ári á þessu tímabili. Gini-stuðullinn er viðtekinn mælikvarði á misskiptingu tekna milli manna og er reiknaður úr gögnum um neyzluútgjöld heimilanna eða tekjur, ýmist samkvæmt neyzlukönnunum eða skattframtölum, og tekur í minnsta lagi gildið 0, ef allir hafa sömu tekjur eða neyzlu (fullkominn jöfnuður), og í mesta lagi 100, ef allar tekjur og neyzla falla einum manni í skaut (fullkominn ójöfnuður). Séu tekjur mælikvarðinn, er helzt miðað við heildartekjur að greiddum sköttum og þegnum bótum, svo að tekjujöfnunaráhrifum skatta- og tryggingakerfisins sé haldið til haga. Ef horft er til heimsins alls, nær Gini-stuðullinn frá 25 í Danmörku, Japan, Belgíu, Svíþjóð og Tékklandi, þar sem tekjuskiptingin er jöfnust, upp í 71 í Afríkulandinu Namibíu, þar sem hún er nú talin vera ójöfnust.
Misskipting eins og á Bretlandi.
Jöfnuður á Íslandi var löngum talinn svipaður og annars staðar um Norðurlönd, en svo er ekki lengur. Samkvæmt ríkisskattstjóra var Gini-stuðull Íslands árið 2005 36 eins og á Bretlandi, en þar er misskipting tekna meiri en annars staðar í Evrópu nema í Eistlandi, Portúgal og Tyrklandi. Tölurnar um Ísland eiga við ráðstöfunartekjur sambýlisfólks með fjármagnstekjum samkvæmt skattframtali ásamt barna- og vaxtabótum að frádregnum tekju-, eignar- og fjármagnstekjuskatti. Tölur ríkisskattstjóra sýna, að jöfnunaráhrif skatta- og tryggingakerfisins hafa minnkað jafnt og þétt allt tímabilið. Breytingar á skattkerfinu og tryggingakerfinu undangengin ár hafa því dregið úr jöfnuði. Íslenzki Gini-stuðullinn hefur að jafnaði hækkað um eitt stig á ári og vel það síðan 1993.Svo skyndileg umskipti í tekjuskiptingu hafa ekki nokkurn tímann átt sér stað í nokkru nálægu landi, þótt misskipting tekna hafi víða færzt í vöxt að undanförnu vegna tækniframfara og aukinna viðskipta. Tíu stiga munur á Gini-stuðlum milli landa svarar til munarins á jöfnuði í tekjuskiptingu í Noregi og á Bretlandi. Ójöfnuður er mun meiri en annars staðar í okkar heimshluta, án þess að frá því væri greint á áberandi stað í opinberum hagskýrslum áður.
(Byggt á upplýsingum ríkisskattstjóra og Þorvaldar Gylfasonar prófessors,heimasíði hans)
|