Samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins,sem birt var í morgun,9.febrúar,er ríkisstjórnin fallin.Framsóknarflokkurinn fengi samkvæmt könnuninni 11,2% atkvæða og 7 þingmenn í stað 17,7% atkvæða í kosningunum sl. vor og 12 þingmenn. Sjálfstæðisflokkurinn fengi samkvæmt könnuninni 37,9% atkvæða og 24 þingmenn.Í kosningunum sl. vor fékk Sjálfstæðisflokkurinn 33,9% atkvæða og 22 þingmenn. Samanlagt fengju stjórnarflokkarnir 31 þingmann,sem dugar ekki.
VG STÆRRI EN FRAMSÓKN
Samkvæmt skoðanakönnun Fréttablaðsins fengju Vinstri grænir 12,6% atkvæða og 8 þingmenn.Þeir eru því orðnir stærri en Framsókn. Í kosningunum sl. voru fengu Vinstri grænir 8,8% atkvæða og 5 þingmenn. Þeir hafa því bætt miklu við sig.Samfylkingin fengi samkvæmt könnuninni nánast sama fylgi og í kosningunum sl. vor eða 30,9% atkvæða miðað við 31% í kosningunum. Þingmannatala væri óbreytt eða 20 þingmenn. Frjálslyndi flokkurinn fengi samkvæmt könnuninni 7% atkvæða en í kosningunum fékk flokkurinn 7,4% og 4 þingmenn. Hann fengi sömu þingmannatölu nú.
FYLGISTAP FRAMSÓKNAR EÐLILEGT
Fylgistap Framsóknarflokksins er eðlilegt. Flokkurinn er búinn að vera hækja Sjálfstæðisflokksins í tæp 9 ár og hefur stutt öll helstu mál Sjálfstæðisflokksins. Framsókn virðist tæplega hafa sjálfstæða skoðun lengur. Flokkurinn hefur lagt félagslega húsnæðiskerfið í rúst,heilbrigðiskerfið er í algerum ólestri eftir langvarandi stjórn Framsóknar á því ráðuneyti,bætur almannatrygginga hafa dregist langt aftur úr lágmarkslaunum á almennum vinnumarkaði og hið sama er að segja um atvinnuleysisbætur sem eru aðeins um 80 þús. kr. á mánuði.Þannig mætti áfram telja. Framsókn ber ábyrgð á almannatryggingunum og bótum atvinnulausra.
STJÓRNARFORUSTA BREYTIR ENGU
Stjórnarforusta Framsóknar frá og með 15.september n.k. mun engu breyta í þessu efni. Sjálfstæðisflokkurinn mun áfram ráða öllu. Sjálfstæðisflokkurinn er það mikið stærri en Framsókn á þingi,að hann mun ekki gefa eftir neitt af sínum völdum.Framsókn fær aðeins fundarstjóra ríkisstjórnarfunda en að öðru leyti verða völdin áfram hjá Sjálfstæðisflokknum. Jafnvel má búast við,að aðstaða Framsóknar versni við þessa breytingu,þar eð mikil óánægja er í Sjálfstæðisflokknum með það,að Framsókn fái forsætisráðherrann. Má búast við,að eftir 15.september n.k. muni misklíð aukast milli stjórnarflokkanna.
ÓLAFUR RAGNAR Á EFTIR AÐ SAMÞYKKJA
Ólafur Ragnar Grímsson,forseti Íslands, á eftir að samþykkja breytinguna 15.september n.k. Hann á eftir að samþykkja að fela Halldóri Ásgrímssyni að mynda nýja ríkisstjórn eftir að Davíð Oddsson segir af sér. Ekki er að búast við því,að Davíð Oddson hafi rætt það við forseta Íslands, að hann ætlaði að láta Halldór taka við 15.september n.k. Og að sjálfsögðu er það mjög óeðlilegt,að núverandi forsætisráðherra skyldi tilkynna það eftir síðustu kosningar,að nýr forsætisráðherra ætti að taka við 15.september n.k. Það er forseti Íslands,sem ákveður samkvæmt stjórnarskránni hver myndar ríkisstjórn. Breyting á forsætisráðherra verður því að fara gegnum forseta Íslands. Án samþykkis forseta Íslands getur slík breyting ekki átt sér stað.
Björgvin Guðmundsson
|