Utanríkisráðherra Íslands hélt vestur um haf ásamt fjölmennri sendinefnd til fundar við Powell,utanríkisráðherra Bandaríkjanna.En svo illa vildi til,að áður en til fundarins kom sagði Powell utanríkisráðherra Bandaríkjanna af sér embætti og var því umboðslaus þegar til fundar kom.Fundurinn var ei að síður haldinn og stóð í hálfa klukkustund.
Lítill árangur varð af fundinum.Utanríkisráðherra Íslands hafði að vísu sagt fyrir fundinn,að fyrst og fremst ætti að ræða viðræðuáætlun og koma viðræðum í fastan farveg. Eftir fundinn sagði hann,að viðræður hefðu þokast í rétta átt og að hann hefði trú á því,að varnir yrðu hér áfram,þar á meðal loftvarnir. Embættismenn mundu hefja viðræður um málið í janúar n.k. Bandaríkjamenn hafa farið fram á,að Íslendingar taki þátt í kostnaði við varnarstöðina í Keflavík. Íslenska stjórnin hefur tekið vel í það. Bendir nú allt til þess að Íslendingar ætli að borga fyrir það,að Bandaríkjamenn verði áfram í Keflavík.
Sjónvarpinu fannst það mesta fréttin eftir viðræðurnar í Washington,að varnarsamningurinn væri enn í gildi! Samningnum hefur þó aldrei verið sagt upp.
Össur ekki ánægður
Össur Skarphéðinsson,formaður Samfylkingarinnar sagði eftir viðræðufundinn,að mál hefðu ekkert skýrst á viðræðufundi utanríkisráðherra með Powell,utanríkisráðherra Bandaríkjanna.Enn væri jafnmikil óvissa ríkjandi varðandi framtíð varnarstöðvarinnar í Keflavík og áður. Suðurnesjamenn væru í jafnmikilli óvissu og áður.Steingrímur J.Sigfússon,formaður VG tók í sama streng. Hann sagði,að það væri verið að flytja herinn á brott í áföngum en íslenska stjórnin neitaði að horfast í augu við staðreyndir.
Sjónvarpið birti í gær viðtal Ólafs Sigurðssonar fréttamanns við bandarískan sérfræðing í hermálum.Fram kom í máli sérfræðingsins,að það væri verið að flytja brott bandarískar hersveitir frá Þýzkalandi og öðrum löndum Vestur-Evrópu.Ef upp kæmi ný ógn í Evrópu tæki enga stund að flytja hersveitirnar aftur til þessara landa.Er þetta ekki kjarni málsins: Það er verið að flytja bandarískar hersveitir brott frá löndum Evrópu. En það er unnt að flytja þær til baka aftur á örskots stund,ef þörf krefur.Ísland getur ekki lamið hausnum við steininn. |