|
Stjórnarherrarnir hlunnfara aldraða og öryrkjafimmtudagur, 18. febrúar 2016
| Hvaða leyfi hafa stjórnarherrarnir,Sigmundur Davíð og Bjarni til þess að halda kjörum lífeyrisþega niðri? Fengu þeir eitthvað umboð til þess í síðustu kosningum að hlunnfara aldraða og öryrkja á sama tíma og allir aðrir í þjóðfêlaginu fá miklar kjarabætur. Var það ekki þveröfugt? Sögðust þeir ekki ætla að stórbæta kjör lífeyrisþega? Ég man ekki betur.
Bjarni Benediktsson skrifaði eldri borgurum bréf fyrir síðustu alþingiskosningar og lofaði, að afnema allar tekjutengingar í kerfi almannatrygginga. Hvað þýddi það? Jú,það þýddi eftirfarandi: Að hætta að skerða tryggingabætur TR vegna greiðslna úr lífeyrissjóði.Það hefði verið mikil kjarabót,ef hann hefði staðið við það. Bjarni sveik loforðið!
Hætta að skerða tryggingabætur hjá TR vegna fjármagnstekna af innistæðum í bönkum. Ef eldri borgari á nokkrar krónur í banka hrifsar TR drjúgan hluta af lífeyri hans hjá TR af honum.Afnema þessa skerðingu en hann sveik það loforð líka.Afnema alla skerðingu tryggingabóta vegna atvinnutekna.Hann ætlaði ekki aðeins að rýmka frítekjumarkið. Nei hann lofaði að gefa ótakmarkaða heimild fyrir atvinnutekjum án þess að þær skertu tryggingabætur. En hann sveik þetta kosningaloforð líka!
Á landsfundi Sjálfstæðisflokksins 2013 var eftirfarandi samþykkt: Ellilífeyrir verði leiðréttur strax til samanburðar við þær hækkanir,sem orðið hafa á lægstu launum frá 2009.Þarna er engin tæpitunga töluð. Því er lofað að ellilífeyrir verði leiðréttur vegna launahækkana, ekki seinna heldur strax. En núna tæplega 3 árum seinna er ekkert farið að gera í að efna þetta loforð.
Bjarni Benediktsson var formaður Sjálfstæðisflokksins, þegar þetta var samþykkt 2013 og hann er formaður flokksins ennþá. Hann ber því fulla ábyrgð á þessu loforði og efndum þess.M.ö.o. Bjarni lofaði að hækka lífeyri aldraðra til samræmis við þær hækkanir,sem orðið hefðu á lægstu launum 2009-2013. En hann hefur ekki aðeins svikið það heldur einnig bætt um betur og haldið kjörum aldraðra og öryrkja niðri á síðasta ári, þegar allar aðrar stéttir fengu miklar launahækkanir..
Bjarni lét sem fjármálaráðherra framhaldsskólakennara fá 44% launahækkun!,Hann lét lækna fá 40 % kauphækkun og þannig mætti áfram telja.Ríkið ruddi brautina fyrir gífurlegum launahækkunum. En þegar kom að öldruðum og öryrkjum var afgreidd hungurlús .En þó voru það einmitt lífeyrisþegar,sem Bjarni og raunar Sigmundur einnig lofuðu að bæta kjörin mest hjá i þingkosningunum 2013.
Verkafòlk fékk 14,5% hækkun lágmarkslauna 1.mai 2015.Fiskvinnslufólk fékk 30% hækkun byrjunarlauna og ráðherrarnir sjálfir,þingmenn og embættismenn fengu mikla launahækkun frá 1.mars 2015.( Ráðh.116 þús. kr á mánuði).En þeir Bjarni og Sigmundur Davíð ákváðu,að aldraðir og öryrkjar skyldu ekki fá neina hækkun í 8 mánuði eftir launahækkanir vorsins 2015.Þeir skyldu fyrst fá hækkun 2016 og þá miklu minni hækkun en launþegar eða 9,7% hækkun í stað 14,5%.Með þessari ákvörðun var verið að stórskerða kjör lífeyrisþega og í rauninni að framkvæma nýja kjaragliðnun.Þannig "efndu" leiðtogarnir öll loforðin, sem þeir gáfu kjósendum fyrir kosningar 2013. Í stað þess að efna loforðin við lífeyrisþega voru aldraðir og öryrkjar hlunnfarnir.
Björgvin Guðmundsson
Birt í Fréttablaðinu 18.febrúar 2016
| Deila � Facebook |
N�justu pistlarnir: Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018 Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018 Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018 Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017 Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017 Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017 Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017 Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017 Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017 Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017 Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016 Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016 Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016 Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016 Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016 Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016 Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016 Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016 Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016 Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016 Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016 Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016 Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016 Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016 Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016 76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016 Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016 Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016 Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016 Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016
|
|