|
Engar skattalækkanir næsta árlaugardagur, 29. nóvember 2003
|
Ríkisstjórnin hefur nú verið við völd í rúma 100 daga. Það er ekki langur tími en gefur þó vísbendingu um það hvort stjórnin ætlar að breyta um stefnu með hliðsjón af síðustu þingkosningum eða hvort hún ætlar að berja hausnum við steininn og halda uppteknum hætti.Því miður er allt útlit fyrir,að hið síðarnefnda verði ofan á. Fyrstu mánuðir ríkisstjórnarinnar við völd benda ekki til þess að stjórnin hafi tekið sinnaskiptum. Þvert á móti. Fyrir skömmu hélt Framsóknarflokkurinn fund á Austfjörðum,þar sem allir foringjar flokksins og þingmenn voru viðstaddir. Það sem vakti einna mesta athygli frá fundinum var sú yfirlýsing,er þar kom fram,að ekki yrði um neinar skattalækkanir að ræða næsta ár! Skattamálin voru eitt stærsta málið í síðustu þingkosningum og stjórnarflokkarnir lofuðu báðir miklum skattalækkunum. Sjálfstæðisflokkurinn gekk þó fetinu framar í því efni. En báðir flokkarnir lofuðu mikilli lækkun tekjuskatts.Forsætisráðherra sagði,að skattamálin yrðu lögð fyrir þingið strax í haust og mundi þá koma í ljós hvernig skattar yrðu lækkaðir.Sjálfsagt hafa loforð stjórnarflokkanna um skattalækkanir átt þátt í því,að stjórnin hélt velli. En nú bendir allt til þess,að þetta kosningaloforð verði svikið. Áður hefur komið fram,að loforð ríkisstjórnarinnar um línuívilnun strax í haust hefur verið svikið.Hið sama er að segja um Héðinsfjarðargöng,milli Siglufjarðar og Ólafsfjarðar. Það var einnig svikið að hefja framkvæmdir við þau á tilsettum tíma.Verkið var boðið út en öllum tilboðum hafnað á þeim forsendum,að framkvæmdir gætu valdið þenslu! Ástandið í efnahags-og atvinnumálum er mjög ótryggt um þessar mundir. Atvinnuleysi hefur verið mun meira á þessu ári en í fyrra. Á fyrstu 8 mánuðum þessa árs hefur atvinnuleysi numið 3,5% af mannafla á vinnumarkaði en á öllu sl. ári nam það 2,5%.Námu greiðslur atvinnuleysisbóta 1 milljarði meira fyrstu 8 mánuði ársins en á sama tímabili í fyrra.Alls námu greiðslur atvinnuleysisbóta 2,7 milljörðum fyrstu 8 mánuði ársins. Húsnæði heldur áfram að hækka,bæði eignaríbúðir og leiguíbúðir. Alls nam verðhækkun á íbúðum í fjölbýlishúsum 8,1% á fyrstu 6 mánuðum þessa árs.Húsnæðisliður vísitölu neysluverðs hækkaði um 1,2% í júli sl. og um 1,3% í ágúst. Hefur hækkun á þessum lið ekki verið svo mikil síðan í mai 2000. Þessi hækkun á húsnæði eykur verðbólguna og getur ásamt öðru leitt til þess að verkalýðshreyfingin krefjist leiðréttingar í formi kjarabóta.Verðbólgan nemur 2% sl. 12 mánuði. Ástandið er því engan veginn tryggt. Skoðanakönnun Fréttablaðsins,sem gerð var nýlega, bendir til þess að fylgi Framsóknarflokksins hafi minnkað á ný og sé orðið eins og það var lengst af í kosningabaráttunnni en fylgi Sjálfstæðisflokksins hafi aukist. Fylgi Samfylkingar er svipað og í kosningunum, örlítið meira. Fylgi annarra flokka breytist lítið. Það kemur ekki á óvart,að fylgi Framsóknar sé að minnka á ný. Fylgi flokksins í kosningunum fékkst út á auglýsingabrellur og ljóst var,að það mundi aldrei haldast lengi.Framsóknarflokkurinn hefur minnkað vegna stjórnarsamstarfsins við Sjálfstæðisflokksins og kom það fylgistap þegar fram í kosningunum 1999. Ljóst er, að Framsókn réttir sig ekki af fyrr en flokkurinn slítur stjórnarsamvinnunni við Sjálfstæðisflokkinn.Ef allt hefði verið með felldu hefði Framsókn slitið samvinnunni við Sjálfstæðisflokkinn strax eftir síðustu kosningar. Það er mjög óeðlilegt,að Framsókn skyldi efna til samstarfs við Sjálfstæðisflokkinn þriðja kjörtímabilið í röð og það þrátt fyrir mikið fylgistap í kosningunum 1999,sem staðfest var í kosningunum nú. Það er aðeins ein skýring á því hvers vegna Framsókn kaus að halda áfram samstarfi við Sjálfstæðisflokkinn: Hégómi formanns Framsóknar.Formaðurinn fær að vera forsætisráðherra síðari hluta kjörtímabilsins. Davíð verður þó áfram í stjórninni og mun áfram ráða öllu.En hann vissi,að með því að bjóða formanni Framsóknar að stýra fundum ríkisstjórnar um skeið gæti hann framlengt völd stjórnarinnar eitt kjörtímabilið enn. Og það gekk eftir.
Björgvin Guðmundsson viðskiptafræðingur
Birt í Morgunblaðinu 2003
| Deila � Facebook |
N�justu pistlarnir: Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018 Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018 Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018 Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017 Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017 Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017 Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017 Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017 Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017 Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017 Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016 Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016 Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016 Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016 Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016 Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016 Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016 Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016 Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016 Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016 Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016 Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016 Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016 Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016 Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016 76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016 Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016 Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016 Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016 Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016
|
|