Þegar ég skrifa þennan pistil eru 2 dagar til kosninga og línur mjög farnar að skýrast í kosningabaráttunni. Þó er mjög erfitt að spá fyrir um það, hvort ríkisstjórnin heldur velli eða fellur. Það er mjög mjótt á munum samkvæmt skoðanakönnunum. Mín spá er sú,að annað hvort muni stjórnin falla með 1-2 ja sæta mun eða halda velli með jafnmiklum mun.Ef það síðara gerist getur orðið mjög erfitt fyrir núverandi ríkisstjórn að halda áfram, þar eð 1-2ja sæta þingmeirihluti er of lítill. Og hið sama á að sjálfsögðu við um stjórnarandstöðuna, ef hún fær aðeins 1-2ja sæta meirihluta. Ég er eindregið þeirrar skoðunar, að æskilegt sé að fá félagshyggjustjórn eftir langvarandi stjórnartímabil íhalds og framsóknar. Falli stjórnin mun stjórnarandstaðan, Kaffibandalagið,.ræða saman um stjórnarmyndun. Ég tel, að það verði ekki vandamál fyrir stjórnarandstöðuna að ná samkomulagoi um málefni. Meira vandamál verður að meta hvað telst hæfilegur meirihluti fyrir félagshyggjustjórn. Ég hygg þó, að menn muni tefla á tæpt vað í því efni.
Samfylkingin sækir sig
Skoðanakannanir hafa sýnt Sjálfstæðisflokkinn með fylgi á bilinu 37-42 %. Reynslan hefur hins vegar leitt í ljós, að Sjálfstæðisflokkurinn hefur yfirleitt fengið minna fylgi í kosningum en í skoðanakönnunum. Ég hygg, að það verði eins nú. Ég spái Sjálfstæðisflokknum 37% fylgi. .Framsókn fékk í síðustu kosningum meira fylgi en í skoðanakönnunum fyrir þær kosningar. Ég er ekki viss um, að það gerist nú. Ég spái því, að Framsókn fái 10-12% fylgi.Ef þessi spá gengur eftir að því er varðar stjórnarflokkana heldur stjórnin ekki velli , ekki nema mikið af atkvæðum detti dauð niður. Skoðanakannanir hafa sýnt Samfylkinguna með mjög breytilegt fylgi en hún hefur verið a sækja í sig veðrið eftir því sem nær hefur dregið kosningum. Þegar vika var til kosninga sýndi Fréttablaðið Samfylkinguna með 24% atkvæða. En atkvæðamagn Samfylkingarinnar í einstökum kjördæmum hefur reynst mun meira samkvæmt könnunm, t.d. tæp 30% í Kraganum og 28% í Suðurkjördæmi. Ég spái því, að Samfylkingin fái 26-28%. Fylgi VG hefur einnig rokkað mikið í skoðanakönnunm. Í síðustu könnunum hefur VG verið með fylgi undir 20% . Ég spái því, að VG fái 20%. Frjálslyndir hafa átt á brattann að sækja. Ég spái þeim 7-8%. Þeir fá þingmenn en ekki Íslandshreyfingin.
Kosið um velferðarmálin
Þegar kosningabaráttan hófst töldu margir,að kosningarnar mundu snúast um umhverfismálin. En svo er ekki. Kosningarnar snúast fyrst og fremst um velferðarmálin, málefni aldraðra og öryrkja, málefni barna og geðfatlaðra og heilbrigðismálin. Nátengd þessum málum eru kjaramál og skattamál.. Misskipting og ójöfnuður hefur aukist mikið á stjórnarferli íhalds og framsóknar. Samfylkingin vill snúa þróuninni við og auka á ný jöfnuð í þjóðfélaginu. Samfylkingin vill bæta kjör aldraðra og öryrkja verulega. Hún vill endurreisa velferðarkerfið, sem hefur drabbast niður í tíð íhalds og framsóknar.
Bláa höndin fái hvíld
Sjálfstæðisflokkurinn er búinn að ráða alltof lengi í íslensku þjóðfélagi. Flokkurinn hefur ekki aðeins vilja ráða í pólitíkinni heldur einnig í viðskiptalífinu.Flokkurinn hefur vilja skipta viðskiptaaðilum í lið, þá sem eru þóknanlegir og þá sem ekki hljóta náð fyrir augliti Flokksins. Slíkt gengur ekki í nútíma þjóðfélagi. Það er kominn tími til, að Bláa höndin fái hvíld.
Björgvin Guðmundsson
Birt í Fréttablaðinu 11.mai 2007