Íslenskir blaðamenn voru fyrir skömmu á ferð í Washington til þess að ræða við bandaríska ráðamenn um varnarliðið á Íslandi og væntanlegar breytingar á því. M.a. fengu þeir þær fréttir,að herþoturnar fjórar,sem miklar deilur hafa staðið um,séu vopnlausar og að svo hafi verið undanfarin ár. Herþoturnar,sem eiga að verja Ísland,eru sem sagt vopnlausar!Það hefur sjálfsagt veitt mörgum Íslendingum öryggistilfinningu að sjá bandarískar herþotur fljúga yfir Íslandi enda hafa þeir talið,að þoturnar væru vopnaðar. En svo er ekki. Minnir þetta á söguna um nýju fötin keisarans!Fréttamaður Stöðvar 2,sem var í ferðinni til Washington, sagði í viðtali við Útvarp Sögu, að Ísland hefði verið varnarlaust mörg undanfarin ár. Hann sagði í sama viðtali,að það hefði komið skýrt fram á fundi í Washington,að bandarísk stjórnvöld væru ekki hætt við að flytja herþoturnar frá Íslandi. Því hefði aðeins verið frestað. Bandarísk stjórnvöld teldu,að sú ógn,sem áður steðjaði að Íslandi,væri ekki lengur til staðar. Björn Bjarnason,ráðherra, sagði í viðtali við Útvarp Sögu,að hann gerði ekki mikið úr því þó þoturnar væru vopnlausar. Ekki tæki langan tíma að vopna þær.
Kátbroslegt erindi Íslands
Almenningur hefur furðað sig á því hversu mikla áherslu ríkisstjórnin hefur lagt á það að hafa umræddar 4 herþotur staðsettar á Íslandi, eins og varnir Íslands stæðu og féllu með því að 4 flugvélar væru hér. Þetta mun vekja enn meiri furðu,þegar það hefur nú verið upplýst,að herþoturnar eru vopnlausar.Er ljóst,að vera þeirra á Íslandi er fyrst og fremst táknræn og að þær eru hér til eftirlitsflugs en ekki til þess að verja landið. Bandaríkjastjórn vill staðsetja herþoturnar 4 á Bretlandseyjum en láta þær annast áfram eftirlit við Ísland. Þessi breyting hefur verið ákveðin. Ríkisstjórn Íslands hefur grátbeðið Bandaríkjastjórn að leyfa, að hinar vopnlausu herþotur verði áfram staðsettar á Íslandi. Má telja víst,að erindi Íslands hafi þótt kátbroslegt í Washington.Fyrir þrábeiðni Íslands hefur því nú verið frestað að senda herþoturnar á brott.
Ekki lengur þörf á herþotunum hér
Það er mat Bandaríkjastjórnar,að ekki sé lengur þörf á herþotum á Íslandi. Raunar hefur jafnt og þétt verið fækkað í flugflota Bandaríkjahers hér á landi á undanförnum árum. Bandaríkjastjórn telur,að minnka megi verulega umsvif varnarliðsins hér á landi vegna þess að friðvænlegra er í heiminum en áður var.Innan bandaríska varnarmálaráðuneytisins heyrast raddir um að kalla eigi varnarliðið á brott frá Íslandi. Varnarliðið kom hingað á sínum tíma fyrir frumkvæði NATO og Bandaríkjanna. Nú virðast Bandaríkin telja litla sem enga þörf á varnarliði hér lengur. Ísland ætti að óska eftir mati NATO á því hver teljast mætti lágmarksvarnarviðbúnaður hér á landi. Eðlilegra er að NATO meti það fremur en ríkisstjórn Íslands. Ríkisstjórnin hefur enga þá herfræðiþekkingu,sem geri henni mögulegt að meta nauðsynlegan varnarviðbúnað Íslands. Ef Bandaríkin vilja fara með varnarliðið á brott héðan, á Ísland að samþykkja það nema NATO telji nauðsynlegt að hafa hér varnarviðbúnað áfram.
Pukrast með viðræðurnar
Mikið pukur hefur verið viðhaft í viðræðum Íslands við Bandaríkin um varnarmálin.Eins og menn muna var því haldið leyndu fram yfir kosningar sl. vor,að Bandaríkin hefðu í byrjun mai sl. tilkynnt Íslendingum,að fara ætti með herþoturnar 4 á brott frá Íslandi.Forsætisráðherra upplýsti þetta ekki fyrr en eftir kosningar. Utanríkismálanefnd fékk heldur ekkert að vita um þetta. Síðan hefur verið haldið áfram að pukrast með málið. Athyglisvert er,að það eru íslenskir blaðamenn,sem upplýsa eftir viðtöl við bandaríska ráðamenn, að herþoturnar séu vopnlausar. Eðlilegra hefði verið að þessar upplýsingar hefðu komið frá íslenskum ráðamönnum eða embættismönnum. Eða var þeim ekki kunnugt um,að flugvélarnar væru vopnlausar? Meiri upplýsingar hafa borist frá íslensku blaðamönnunum um mat Bandaríkjanna á vörnum Íslands en höfðu áður borist frá íslenskum ráðamönnum.Er það dæmigert fyrir það hvernig hefur verið haldið á þessu máli.
Björgvin Guðmundsson
viðskiptafræðingur
Birt í Morgunblaðinu 2003
|