|
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!þriðjudagur, 14. júní 2016
| Nú styttist í alþingiskosningar.Ef marka má yfirlýsingu leiðtoga ríkisstjórnarinnar verður kosið i oktober.Það er stuttur tími til stefnu og ekki seinna vænna að athuga hvað á að kjósa .Ég tel,að aldraðir og öryrkjar eigi að athuga hvaða flokkar og stjórnmálamenn styðji kjarabætur þeim til handa.Kjörseðillinn er eina vopn aldraðra og öryrkja.Kjörseðillinn er þeirra “ verkfallsvopn“.Það ríður á að beita því rétt.
Það þarf að kanna kvaða stjórnmálaflokkar og stjórnmálamenn stóðu með öldruðum og öryrkjum við afgreiðslu frumvarps til fjárlaga í desember 2015.Það þarf að athuga hvaða flokkar og stjórnmálamenn hafa viljað hækka lífeyri aldraðra í 300 þúsund krónur á mánuði eins og verkafólk á að fá samkvæmt samningum.Það þarf að kanna hverjir vildu veita öldruðum og öryrkjum afturvirkar kjarabætur eins og ráðherrar,þingmenn,dómarar og umboðsmaður alþingis fengu.Og hvaða þingmenn stóðu gegn því.Það er nokkur vinna í að að athuga þetta. En þetta er nauðsynleg vinna svo unnt sé að greiða atkvæði með kjarabótum til handa öldruðum og öryrkjum.
En svo þarf einnig að athuga núna hvort stjórnarflokkarnir eru búnir að efna kosningaloforðin, sem þeir gáfu öldruðum og öryrkjum fyrir alþingiskosningarnar 2013.Ef alþingismenn vilja komast i vinnu hjá okkur áfram þarf að athuga hvernig þeir hafa staðið sig.Niðurstaðan er þessi: Leiðtogar og frambjóðendur stjórnarflokkanna gáfu öldruðum og öryrkjum það loforð fyrir alþingiskosningarnar 2013, að lífeyrir aldraðra og öryrkja yrði leiðréttur vegna kjaragliðnunar krepputímans 2009-2013.Sjálfstæðisflokkurinn lofaði að gera þetta þannig, að lífeyrir aldraðra yrði hækkaður til samræmis við hækkun lægstu launa 2009-2013. Framsóknarflokkurinn samþykkti, að lífeyrir yrði leiðréttur vegna kjaragliðnunar ( kjaraskerðingar) krepputímans.Það er ekki farið að efna þetta stóra loforð ennþá nú rétt fyrr kosningar.
Formaður Sjálfstæðisflokksins,Bjarni Benediktsson,sendi öldruðum bréf 2013 og lofaði þeim því, að allar tekjutengingar í kerfi almannatrygginga yrðu afnumdar.Það þýddi að hætta að skerða lífeyri aldraðra hjá almannatryggingum vegna greiðslna úr lífeyrissjóði og vegna tekna af atvinnu og fjármagni.Þetta þýddi miklar kjarabætur fyrir aldraða, ef efnt yrði. Það þýðir ekki fyrir Bjarna að biðja um vinnu áfram hjá þjóðinni nema hann efni þetta stóra loforð fyrst.Og loforðin voru fleiri. Stjórnarflokkarnr lofuðu að afturkalla alla kjaraskerðingu aldraðra og öryrkja frá árinu 2009. Það voru 6 atriði. Það er búið að efna 3 þeirra en 3 eru eftir. Það verður að efna þau líka
Kjörseðillinn er beitt vopn, ef hann er notaður rétt.
Björgvin Guðmundsson
viðskiptafræðingur
Fréttablaðið 14.júní 2016
| Deila � Facebook |
N�justu pistlarnir: Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018 Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018 Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018 Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017 Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017 Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017 Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017 Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017 Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017 Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017 Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016 Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016 Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016 Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016 Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016 Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016 Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016 Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016 Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016 Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016 Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016 Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016 Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016 Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016 Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016 76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016 Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016 Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016 Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016 Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016
|
|