Það mun hafa verið Albert heitinn Guðmundsson, sem fyrstur hreyfði þeirri hugmynd í borgarstjórn Reykjavíkur að leggja ákveðinn skatt á hvern gjaldanda í landinu til þess að kosta byggingu hjúkrunarheimila fyrir aldraða. Við sem þá sátum með Albert í borgarstjórn urðum strax hrifnir af þessari hugmynd hans og það skapaðist þverpólitísk samstaða um hana. Hugmyndin náði fram að ganga og það var lögfest að leggja á landsmenn gjald,sem mynda skyldi framkvæmdasjóð aldraðra til þess að kosta framkvæmdir við byggingu stofnana fyrir eldri borgara. En misvitrir stjórnmálamenn hafa eyðilagt framkvæmdasjóðinn. Það var opnuð heimild til þess að sjóðurinn kostaði einnig í vissum tilvikum rekstur hjúkrunarheimila og stofnana og eins og ég hefi bent á áður í greinum mínum hafa margir milljarðar verið teknir úr sjóðnum til reksturs. Það var aldrei meiningin, þegar sjóðurinn var stofnaður, að láta neitt renna úr honum til reksturs.Alls munu hafa verið teknir 3-4 milljarðar úr framkvæmdasjóðnum til eyðslu, til reksturs á undanförnum árum. Það er forkastanlegt, þar eð þetta hefur gerst á sama tíma og mikil vöntun hefur verið á hjúkrunarheimilum fyrir aldraða og biðlistar hafa verið mjög langir. Það eru ráðherrar heilbrigðis og tryggingamála,sem bera ábyrgð á þessu ráðslagi.
Framkvæmdasjóður látinn styrkja söng og listir!
En ráðherrar hafa ekki látið við það sitja að taka fjármagn úr framkvæmdasjóði til reksturs. Nei þeir hafa einnig látið sjóðinn styrkja ýmis gæluverkefni á sviði menningar-og listastarfsemi og meira að segja hefur núverandi heilbrigðisráðherra látið sjóðinn kosta útgáfu áróðursbæklings.Mig rak í rogastans, þegar ég heyrði Ástu Ragnheiði Jóhannesdóttur, alþingismann, segja frá því á Útvarpi Sögu, að framkvæmdasjóður aldraðra hefði styrkt ýmis verkefni á sviði söng-og listastarfsemi.Þessar styrkveitingar eru að mínu mati ólöglegar eða a.m.k stríða gegn anda laganna..Sjóðurinn er kominn langt út fyrir sitt markmið með því að veita peningum í slík verkefni.Í rauninni er hér um misnotkun á sjóðnum að ræða.
Milljörðunum verði skilað til aldraðra
Eldri borgarar krefjast þess, að ríkið skili aftur þeim milljörðum, sem teknir hafa verið úr framkvæmdasjóði til eyðslu.Aldraðir vilja fá þessa peninga til byggingar hjúkrunarheimila.Eldri borgarar vilja einnig fá til baka þá fjármuni,sem stjórnarflokkarnir hafa haft af öldruðum í skertum lífeyri síðustu 12 árin.Þar er um 40 milljarða að ræða. Stjórnvöld lofuðu því 1995, að aldraðir mundu fá sömu uppbætur á lífeyri sinn eins og láglaunafólk fengi á laun sín. Þetta fyrirheit var svikið. Þau svik hafa kostað aldraða 40 milljarða.Ríkið verður að leiðrétta kjör aldraðra með því að greiða þeim þessa fjárhæð til baka strax.
Björgvin Guðmundsson
Birt í Fréttablaðinu 28.3 2007 |