Morgunblaðið tekur í Reykjavíkurbréfi í dag til við fyrri iðju og ræðst á Samfylkinguna um leið og blaðið hælir Vinstri grænum á hvert reipi.Segir blaðið nú, að Vinstri grænir hafi yfirgefið vinstri stefnu og séu nú einungis góður umhverfisflokkur. Er ljóst hvert blaðið stefnir með þessum málflutningi: Að búa sjálfstæðismenn undir að samþykkja Vinstri græna sem samstarfsaðila, ef Framsóknarhækjan brestur eins og allt bendir til og finna þarf nýja hækju fyrir Sjálfstæðisflokkinn við stjórnarmyndun.Síðan kemur Mbl. með alls konar sleggjudóma og slúður um Samfylkinguna svo sem, að Samfylkinguna skorti málefnalega sannfæringu og að ágreiningur sé í forustu Samfylkingarinnar.Þetta er áróður sem er búinn til í Valhöll og á Mbl. en enginn fótur er fyrir. Samkomulag er mjög gott í Samfylkingunni.Það er áreiðanlega betra en í Sjálfstæðisflokknum enda muna menn að gerður var aðsúgur að Birni Bjarnasyni ráðherra í prófkjörinu vegna þingkosninganna og frá því að Davíð Oddsson lét af formennsku hefur arftakinn verið að hreinsa stuðningsmenn Davíðs burt úr áhrifastöðum í flokknum svo sem fyrrum framkvæmdastjóra, Kjartan Gunnarsson.Hann var látinn fara.Samfylkinguna skortir ekki málefnalega sannfæringu og það er ósmekklegt og beinlínis rangt hjá Mbl. að halda því fram, að Samfylkingin hafi ekki barist fyrir jöfnuði, eins og blaðið segir. Það gengur eins og rauður þráður gegnum öll stefnumál Samfylkingarinnar að berjast eigi gegn ójöfnuði og misskiptingu og stuðla að jöfnuði í þjóðfélaginu. Barátta fyrir jöfnuði var stórt atriði í ræðu Ingibjargar Sólrúnar á landsfundi Samfylkingarinnar.
Óskhyggja Reykjavíkurbréfs um ófarir Samfylkingar
Reykjavíkurbréf vitnar í ritdóm Jóns Baldvins um bók Steingríms J.Sigfússonar í Mbl. en þar segir Jón, að ef kosningaúrslitin verði eins og skoðanakannanir hafi sameining jafnaðarmanna mistekist. Reykjavíkurbréfið breytir ummælum Jóns Baldsins á þann veg, að hann hafi sagt, að sameining jafnaðarmanna hafi þegar mistekist eins og búið væri að kjósa.Síðan spinnur Reykjavíkurbréfið langan vef byggðan á hinum breyttu ummælum.Í hugskoti höfundar Reykjavíkurbréfsins leysist Samfylkingin upp og Alþýðuflokkurinn endurlífgast og ýmsar aðrar hræringar verða í pólitíkinni, allar í samræmi við óskhyggju Reykjavíkurbréfsins.
Stórtap íhaldsins 2003
Stjórnmálaflokkar hafa oft orðið fyrir ágjöfum og rétt sig síðan við á ný. Alþýðuflokkurinn varð fyrir mörgum áföllum en forustumenn flokksins lögðu aldrei árar í bát. Sjálfstæðisflokkurinn hefur einnig orðið fyrir miklum áföllum, síðast í þingkosningunum 2003, er fylgi flokksins hrapaði í 33 % vegna sóknar Samfylkingarinnar, sem þá fékk 31%. Sjálfstæðisflokkurinn varð fyrir miklu áfalli þegar Borgaraflokkurinn var stofnaður og fylgið fór þá talvert niður fyrir 30% í þingkosningum..
Skýr stefna Samfylkingar í öllum málum
Nú er verið að leggja út af skoðanakönnunum en ekki kosningaúrslitum..Enginn veit enn hvað Samfylkingin fær mikið fylgi í næstu þingkosningum. Hún getur stórbætt stöðu sína enn. Enginn flokkur hefur undirbúið sig eins vel málefnalega og Samfylkingin. Hún hefur mótað skýra stefnu í öllum helstu málaflokkum, nú síðast í efnahagsmálum með vandaðri vinnu. Áður hafði flokkurinn lagt mikla vinnu í nýja stefnu í umhverfismálum svo og varðandi málefni barna. Ég hefi þá trú,að þegar kjósendur kynnast stefnu Samfylkingarinnar í þessum málum og varðandi endurreisn velferðarkerfisins muni þeir snúa sér í ríkum mæli að Samfylkingunni sem málsvara jafnaðarstefnunnar á Íslandi. .
Björgvin Guðmundsson |