|
Lífeyrissjóður skerði ekki tryggingabæturþriðjudagur, 20. september 2011
| Hver verða næstu skrefin í kjarabaráttu eldri borgara? Næsta skrefið er að afturkalla kjaraskerðinguna,sem Árni Páll Árnason þáverandi félagsmálaráðherra lét lögleiða 1.júlí 2009.Þá voru kjör eldri borgara og öryrkja skert verulega vegna kreppunnar en tekið fram, að um tímabundnar ráðstafanir væri að ræða.Nú er aðeins farið að rofa til, hagvöxtur að byrja og staða ríkisfjármála hefur batnað mikið frá því bankahrunið skall á.Þess vegna er tímabært að afturkalla kjaraskerðinguna frá 1.júlí 2009.
Voru sviptir grunnlífeyri almannatrygginga
Skerðing tryggingabóta var stóraukin 1.júlí 2009. Frítekjumark vegna atvinnutekna, sem hafði verið tæpar 110 þúsund krónur á mánuði, var fært niður í 40 þúsund krónur á mánuði.Það var sem sagt ákveðið að refsa þeim eldri borgurum, sem voru að reyna að vinna svolítið.Ég efast um, að ríkið hafi grætt mikið á þessari ráðstöfun.Margir eldri borgarar hafa hætt að vinna vegna þessa og við það missir ríkið skatttekjur.Það hefði verið óhætt að hafa frítekjumarkið óbreytt. Tilfinnanlegast var þó, að ákveðið var að láta greiðslur úr lífeyrissjóði hafa aukin áhrif á útreikning grunnlífeyris. Við þessa ráðstöfun missti mikill fjöldi eldri borgara grunnlífeyri sinn og hefur nú engan lífeyri frá almannatryggingum.Tekjur 5210 eldri borgara frá almannatryggingum lækkuðu við þetta.Mér er til efs, að þessi ráðstöfun standist jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar.Mikill fjöldi eldri borgara fær nú ekki krónu frá almannatryggingum en hefur þó borgað til þeirra allan sinn starfsferil.Þegar almannatryggingar voru stofnaðar var tekið skýrt fram, að þær ættu að vera fyrir alla án tillits til stéttar og efnahags.Eftir breytingu þá, sem Árni Páll gerði 1.júlí 2009, eru almannatryggingar fyrir ákveðin hóp fólks en ekki fyrir alla. Það er verið að breyta tryggingunum í átt til fátækraframfærslu.Þetta gengur þvert á upphaflegt markmið almannatrygginga. Sem dæmi um það hvernig þetta hittir vissan hóp fyrir má nefna, að þegar 50 þús króna eingreiðsla var ákveðin fyrir launþega og bótaþega almannatrygginga í nýgerðum kjarasamningum var ákveðið að þeir, sem hefðu ekki grunnlífeyri fengju ekki heldur þessa eingreiðslu. Fyrst er þessi hópur strikaður út úr kerfi almannatrygginga og síðan er hann sviptur kjarabótum, sem samið er um, að launþegar og lífeyrisþegar eigi að fá.1.júlí 2009 var tekjutryggingin einnig skert beint, þar eð skerðingarhlutfall hennar var hækkað úr 38,35% í 45%. Við þetta lækkuðu tekjur 18940 eldri borgara.
Það verður að afturkalla alla kjaraskerðinguna frá 2009.En auk þess þarf að afnema með öllu skerðingu tryggingabóta vegna greiðslna úr lífeyrissjóði.Launþegar,sem greitt hafa í lífeyrissjóð allan sinn starfsferil, eiga að njóta að fullu lífeyris síns þegar þegar fara á eftirlaun.En það gera þeir ekki, ef tryggingabætur eru skertar á móti greiðslum úr lífeyrissjóði eins og nú er gert.Þessa skerðingu verður að afnema strax. Það var aldrei meiningin, þegar lífeyrissjóðirnir voru stofnaðir, að þeir mundu skerða tryggingabætur.Lífeyrissjóðirnir áttu að vera viðbót við lífeyri almannatrygginga.
Björgvin Guðmundsson
Birt í Mbl. 14.sept. 2011 | Deila � Facebook |
N�justu pistlarnir: Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018 Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018 Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018 Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017 Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017 Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017 Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017 Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017 Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017 Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017 Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016 Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016 Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016 Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016 Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016 Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016 Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016 Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016 Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016 Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016 Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016 Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016 Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016 Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016 Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016 76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016 Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016 Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016 Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016 Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016
|
|