|
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!fimmtudagur, 21. apríl 2016
| Það vakti athygli á síðasta ári,þegar heyrnarlaus stúlka,Snædís Hjartardóttir,vann mál gegn ríkinu,þar eð hún hafði ekki fengið lögbundna túlkaþjónustu.Menntamálaráðuneytið hafði neitað að greiða henni fyrir túlkaþjónustu,sem hún átti rétt á.Ráðuneytið bar þvi við, þegar synjað var um túlkaþjónustu, að fjámunir væru ekki til.Mál var höfðað á þeim grundvelli, að samkvæmr 76.grein stjórnarskrárinnar ætti heyrnarlausa stúlkan rétt á aðstoð ríkisins. En í umræddri grein stjórnarskrárinnar segir,að þeir sem þurfi á aðstoð ríkisins að halda skuli fá hana.Þegar ríkið sagði fyrir héraðsdómi, að ekki hefði verið unnt að veita túlkaþjónustuna, þar eð peningar hefðu ekki verið til, sagði héraðsdómur,að það skipti ekki máli.Þetta væri stjórnarskrárvarinn réttur stúlkunnar að fá túlkaþjónustu.Þess vegna ætti hún að fá hana.
Gildir ekki það sama um lífeyri þeirra eldri borgara og öryrkja,sem eingöngu hafa tekjur frá almannatryggingum, ef sá lífeyrir dugar ekki fyrir framfærslukostnaði,lyfjum og lækniskostnaði? Jú,það tel ég. 76.grein stjórnarskrárinnar gildir um þessa aðila á sama hátt og hún gilti um heyrnarlausu stúlkuna. Það liggur fyrir, að lífeyrir að fjárhæð 207 þúsund krónur á mánuði eftir skatt,sem einhleypir ellilífeyrisþegar fá frá TR, dugar ekki fyrir framangreindum útgjöldum. Félag eldri borgara í Reykjavík hefur upplýst, að algengt sé að einverjir úr þessum hópi hafi samband við skrifstofu félagsins í lok mánaðarins og skýri frá þvi, að þeir eigi ekki fyrir lyfjum eða læknishjálp eða jafnvel ekki fyrir mat.Þetta er mannréttindabrot og brot á stjórnarskránni að mínu mati og íslensku þjóðfélagi til skammar, að þetta skuli látið viðgangast.Þetta gerist þó ráðamenn segi, að allir hagvísar þjóðarbúsins séu hagstæðir og afgangur á fjárlögum ríkisins. Samkvæmt því virðast aldraðir og öryrkjar, sem eingöngu hafa tekjur frá TR ,látnir sitja á hakanum.
Í 76.grein stjórnarskrárinnar segir: Öllur,sem þess þurfa,skal tryggður í lögum réttur til aðstoðar vegna sjúkleika,örorku,elli,atvinnuleysis,örbirgðar og sambærilegra atvika.Öllum skal tryggður í lögum réttur til almennrar menntunar og fræðslu við sitt hæfi.Börnum skal tryggð í lögum sú vernd og umönnun,sem velferð þeirra krefst.-Þessi grein hefur verið túlkuð svo, að aldraðir og öryrkjar eigi rætt á þeim lífeyri frá almannatryggingum,sem dugi til framfærslu.Veita á einnig aðstoð vegna sambærilegra atvika og tryggja almenna menntun.Þetta dugði til þess að heyrnarlausa stúlkan ætti rétt á túlkaþjónustu og það ætti að duga til þess að tryggja öldruðum og öryrkjum nægilegan lifeyri.
Björgvin Guðmundsson
| Deila � Facebook |
N�justu pistlarnir: Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018 Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018 Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018 Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017 Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017 Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017 Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017 Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017 Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017 Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017 Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016 Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016 Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016 Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016 Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016 Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016 Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016 Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016 Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016 Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016 Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016 Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016 Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016 Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016 Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016 76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016 Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016 Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016 Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016 Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016
|
|