|
"Er við komum til Osló hafði Smugudeilan siglt í strand". Viðtal við Björgvin Guðmundsson í Mbl.þriðjudagur, 2. desember 2003
| FYRIR liggur tillaga hjá EFTA um að komið verði á fót sveitastjórnar ráði hjá samtökunum sem myndi verða í nánum tengslum við sveita stjórnarráð ESB ( Committee of the Regions). Björgvin Guðmundsson, fyrrum borgarfulltrúi og starfsmaður í stjórnarráðinu í þrjá áratugi,skrifstofustjóri og sendifulltrúi, hefur kannað sérstaklega áhrif EES samningsins og nýrra tilskipana á sveitarfélögin og tillögur að nýjum tilskipunum ESB. Hann segir að sé horft til þess að Ísland geti ekki fylgst með fram gangi mála hjá Ráðherraráðinu og Evrópuþinginu, þar sem löggjafar valdið liggi, sé óheppilegt fyrir Ísland að það skuli ekki vera aðili að sambandinu. Til þess að hafa áhrif á nýjar tilskipanir, sem snerti t.a.m. sveitarfélögin, sé nauðsynlegt fyrir okkur að koma að málum áður en tilskipanirnar eru að fullu af- greiddar. "Aftur á móti eru önnur atriði sem í mínum huga vega þyngra og það eru sjávarútvegsmálin. Ég er þeirr ar skoðunar að við eigum ekki að ganga inn fyrr en það er tryggt að við getum fengið að halda fullu for ræði í sjávarútvegsmálum.Við fengjum líklega ekki undanþágu frá sjávarúvegsstefnu ESB í dag." Utanríkisráðuneytið og Samband íslenskra sveitarfélaga fá nú reglulega lista yfir þær tillögur sem framkvæmdastjórn ESB sendir til sveitarstjórnaráðsins. Björgvin bendir á að þótt hann hafi sótt fundi sveitarstjórnaráðsins sem fulltrúi utanríkisráðuneytisins þá hafi EFTA ríkin ekki haft formlega að komu að sveitastjórnaráði ESB. Á hinn bóginn hafi EFTA/EES ríkin að gang að fundum sérfræðinganefnda framkvæmdastjórnarinnar. "Hins vegar er það nú svo að við höfum ekki getað sótt nema hluta af þeim fundum sem við hefðum getað sótt vegna þess að við höfum ekki mannafla í það. Það breytir því ekki að við þyrft um að hafa aðkomu að þeim nefndum sem skipta mestu máli," segir hann. Björgvin hóf störf í viðskiptaráðu neytinu árið 1964, þar vann hann í tæp 20 ár og í 11 ár í utanríkisráðu neytinu. Hann gegndi margvís legum störfum í stjórnarráðinu, var m.a. formaður gjaldeyrisnefndar bankanna og verð lagsnefndar og samninganefnda Ís lands um gerð fríverslunarsamninga við öll Eystarsaltsríkin. Hann lét af störfum í september sl. vegna aldurs. Árin 1998-2001 var hann sendifulltrúi við sendiráð Íslands í Osló.Sendiherra var þá Kristinn F.Árnason."Er við komum til Osló hafði Smugudeilan siglt í strand. Viðræður lágu niðri.Menn höfðu talið þýðingarlaust að reyna viðræður fyrir Alþingiskosningarnar 1999. Kristinn lagði þó til, að haldinn yrði samningafundur. Það var gert og deilan leystist." Björgvin segir að könnunin á áhrifum EES samningsins á sveit arfélögin hafi verið mjög áhugavert verkefni. Komið hafi verið á fót sam starfshópi nokkurra ráðuneyta og Sambands íslenskra sveitarfélaga um þennan málaflokk sem Björgvin veitti forstöðu. Þá hafi margvísleg önnur kynning farið fram gagnvart íslenskum sveitarfélögum. "Það er búið að ýta þessu verkefni úr vör og nú er það annarra hjá ráðu neytinu og Sambandi íslenskra sveit arfélaga að halda starfinu áfram.
Birt í Morgunblaðinu 2002
| Deila � Facebook |
N�justu pistlarnir: Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018 Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018 Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018 Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017 Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017 Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017 Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017 Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017 Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017 Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017 Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016 Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016 Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016 Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016 Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016 Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016 Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016 Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016 Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016 Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016 Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016 Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016 Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016 Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016 Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016 76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016 Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016 Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016 Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016 Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016
|
|