|
Eldri borgarar mega hvorki vinna né sparafimmtudagur, 21. september 2017
| Ríkisstjórnin er búin að vera við völd í 8 mánuði.Hún lofaði að bæta aðstöðu og kjör aldraðra; m.a. að gera það auðveldara fyrir eldri borgara að vera á vinnumarkaðnum.Hvað hefur ríkisstjórnin gert til þess að bæta aðstöðu og kjör aldraðra? Svarið er: Ekkert.Ríkisstjórnin hefur ekki gert eitt einasta atriði fyrir eldri borgara á þessu tímabili.Þvert á móti: Hún hefur gert það erfiðara fyrir eldri borgara að vera á vinnumarkaðnum.Og raunar hefur hún gert það nær ókleift.
Það hefði verið eðlilegt,að ríkisstjórnin hækkaði eitthvað lífeyri aldraðra og öryrkja.En það gerir hún ekki.Enda þótt lífeyrir þeirra, sem eingöngu fá lífeyri frá almannatryggngum, sé svo lágur,að hann dugi ekki til framfærslu hefur ríkisstjórnin ekkert gert til þess að hækka hann.Hún hefur haldið lífeyri aldraðra og öryrkja niðri við fátæktarmörk og bannað þeim að vinna.Hún torveldar þeim einng að spara, þar eð vextir af sparifé eru skattlagðir með 20% skatti; fjármagnstekjur skerða einnig ellilífeyri .Eldri borgarar eiga til dæmis erfitt með að minnka við sig húsnæði ; ef þeir leggja einhverja peninga í banka er lífeyrir þeirra hjá Tryggingastofnun umsvifalaust
skertur.Sama gildir, ef eldri borgari vill selja sumarbústað og nota andvirðið til efri áranna. Ef hann leggur andvirðið í banka er lífeyrir hans hjá Tryggingastofnun strax felldur niður.Það má því segja,að öldruðum séu allar bjargir bannaðar:Þeir mega ekki vinna og þeir mega ekki spara.
Margir telja,að eldri borgarar fái lífeyri frá TR skattfrjálst.En svo er ekki. Lífeyrir þeirra er skattlagður að fullu. Lífeyrir aldraðra frá Tryggingastofnun á að vera skattfrjáls.Það er ekkert vit í því að
öldruðum mjög nauman lífeyri og kóróna svo ósómann með því að taka skatt af hungurlúsinni.Ríkisstjórnin talar mikið um að hún verji mörgum milljörðum til almannatrygginga.Það skiptir litlu máli þó svo væri á meðan lífeyrir aldraðra og öryrkja dugar ekki til framfærslu.Það eina sem skiptir máli er, að lífeyrir á einstakling sé nægilega hár.Á hinum Norðurlöndunum er lífeyrir ýmist skattfrjáls eða lágt skattaður.
Greiðslur ríkis og lífeyrissjóða til eftirlauna nema um 10% af vergri
þjóðarframleiðslu á hinum Norðurlöndunum en hér nema þær aðeins um 5% eða helmingi minna. Ef athugað er hvað eingöngu ríkið greiðir mikið til eftirlauna á Norðurlöndum er munurinn meiri.Á Íslandi ver ríkið rúmlega 2% af vergri
þjóðarframleiðslu til eftirlauna en í Danmörku greiðir ríkið um 8% til eftirlauna . Auk þess er lífeyrir aldraðra
og öryrkja miklu hærri á hinum Norðurlöndunum en hér. Það er því sama hvar borið er niður Ísland rekur alls staðar lestina.
Björgvin Guðmundsson
Birt í Fréttablaðinu 21.sept 2017
| Deila � Facebook |
N�justu pistlarnir: Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018 Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018 Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018 Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017 Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017 Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017 Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017 Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017 Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017 Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017 Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016 Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016 Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016 Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016 Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016 Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016 Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016 Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016 Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016 Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016 Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016 Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016 Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016 Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016 Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016 76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016 Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016 Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016 Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016 Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016
|
|