|
Ekki á að refsa öldruðum fyrir að vinna og sparasunnudagur, 7. ágúst 2011
| Endurskoðun laga um almannatryggingar stendur nú yfir.Miklar vonir eru bundnar við þessa endurskoðun, þar eð núgildandi lög eru á margan hátt orðin úrelt.Tekjutengingar eru orðnar alltof miklar og nauðsynlegt að afnema þær eða draga úr þeim að verulegu leyti.Þegar nýsköpunarstjórnin kom almannatryggingum á fót árið1946 að kröfu Alþýðuflokksins voru lögin mjög góð og innleiddu kerfi almannatrygginga,sem var eins og það gerðist best í grannlöndum okkar. Ólafur Thors forsætisráðherra nýsköpunarsstjórnarinnar lýsti því þá yfir, að almannatryggingar á Íslandi ættu að vera í fremstu röð og fyrir alla án tillits til stéttar og efnahags.Á þeim tíma, sem liðinn er síðan, hafa almannatryggingar á Íslandi dregist verulega aftur úr almannatryggingum í hinum norrænu löndunum.
Tryggingarnar eru ekki fátækraframfærsla
Hugsunin á bak við almannatryggingarnar var í upphafi sú, að almannatryggingarnar væru eins og hverjar aðrar tryggingar.Menn greiddu til þeirra meðan þeir væru í vinnu en fengju síðan greitt frá þeim, ef slys eða veikindi bæru að höndum og þegar þeir yrðu að hætta að vinna vegna aldurs. En með því að auka stöðugt tekjutengingar í kerfinu og láta greiðslur úr lífeyrissjóðum skerða tryggingabætur hafa almannatryggingar verið að þróast í átt til fátækraframfærslu.Það var ekki meiningin, þegar tryggingunum var komið á fót. Þegar ákveðið var 1.júlí 2009 að láta greiðslur úr lífeyrissjóðum skerða grunnlífeyri datt stór hópur eldri borgara út úr kerfinu og fær í dag engan lífeyri frá almannatryggingum enda þótt sá sami hópur hafi greitt til almannatrygginga alla starfsævina.Það er ótækt.5210 eldri borgarar urðu fyrir tekjuskerðingu vegna þessa.Áður töldust greiðslur úr lífeyrissjóði ekki til tekna við útreikning grunnlífeyris.En frá 1.júlí 2009 teljast þær til tekna við þann útreikning. Það verður að leiðrétta þetta og hverfa aftur til þess ástands sem var fyrir 1.júlí 2009.Að mínu mati eiga allir eldri borgarar rétt á grunnlífeyri.
Lífeyrissjóðir verði viðbót við almannatryggingar
Það er krafa samtaka eldri borgara, að afnumin verði skerðing tryggingabóta vegna greiðslna úr lífeyrissjóði.Landssamband eldri borgara og Félag eldri borgara í Reykjavík vilja, að þessi leiðrétting verði gerð sem fyrst.Gera má þessa leiðréttingu í áföngum, til dæmis í tvennu lagi.Það var aldrei meiningin,þegar lífeyrissjóðirnir voru stofnaðir, að þeir yrðu til þess að skerða tryggingabætur almannatrygginga. Þeir áttu að verða viðbót við almannatryggingar.Nú er það svo, að sá sem fær t.d. 50 þúsund krónur á mánuði úr lífeyrissjóði verður að sæta því, að tryggingabætur hans séu skertar um nákvæmlega sömu upphæð, þ.e. 50 þúsund á mánuði. Þessi maður fær því ekkert meira í lífeyri samanlagt en sá,sem aldrei hefur greitt í lífeyrissjóð.Af þessu sést út í hvaða ógöngur kerfið er komið í.Þá er skerðing tryggingabóta aldraðra vegna atvinnutekna alltof mikil. Það verður að auka frítekjumark vegna atvinnutekna.Það er lágmark,að það sé 100 þúsund á mánuði en helst þyrfti það að vera 150 þús.á mánuði. Það á ekki að refsa ellilífeyrisþegum, sem vilja vinna.Einnig þarf að auka verulega frítekjumark vegna fjármagnstekna. Frítekjumarkið er hlægilega lágt í dag.(98 þúsund á ári) Eðlilegt væri að eldri borgarar gætu átt nokkuð sparifé í banka án þess að það ylli skerðingu tryggingabóta.Spurning er einnig hvort ekki ætti að hafa ákveðna upphæð sparifjár í banka skattfrjálsa.Eldri borgarar hafa byggt upp það þjóðfélag,sem við búum við í dag. Stjórnvöld eiga að stuðla að því að aldraðir geti lifað með reisn á síðasta hluta æviskeiðs síns.
Björgvin Guðmundsson
Birt í Morgunblaðinu 8.júlí 2011
| Deila � Facebook |
N�justu pistlarnir: Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018 Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018 Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018 Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017 Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017 Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017 Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017 Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017 Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017 Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017 Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016 Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016 Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016 Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016 Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016 Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016 Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016 Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016 Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016 Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016 Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016 Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016 Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016 Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016 Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016 76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016 Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016 Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016 Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016 Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016
|
|