|
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!fimmtudagur, 25. maí 2017
| Fyrrverandi ríkisstjórn Framsóknar og Sjálfstæðisflokks gumaði mikið af því, að húni gerði einhver ósköp fyrir aldraða og öryrkja frá áramótum.Lífeyrir þeirra eldri borgara, sem voru í hjónabandi og sambúð hækkaði þá um 12 þúsund krónur á mánuði og um 23 þúsund á mánuði hjá einhleypum öldruðum.Hér er átt við þá,sem hafa eingöngu tekjur frá TR. .Ég hef kallað þessar „kjarabætur“ hungurlús.
Töldu hungurlúsina of mikla kjarabót!
En stjórnvöld töldu þessa hungurlús of mikla kjarabót.Hún var því tekin strax til baka,m.a. með skerðingu húsaleigubóta.Fyrir áramót var hámark húsaleigubóta 22.000 kr.
Þeir sem voru með tekjur sínar eingöngu eða að stærstum hluta frá TR voru með óskertar húsaleigubætur, þar sem greiðslur skv. lögum um almannatryggingar skertu ekki bæturnar. Því var breytt frá áramótum.Þá var farið var að reikna allar greiðslur frá Tryggingastofnun til lífeyrisfólks með tekjum við útreikning húsaleigubóta.
Öll áramótakjarabótin tekin aftur!
Í dag er upphæð húsaleigubóta 31.000 kr. fyrir einn í heimili. Tekjuskerðing byrjar við 281.083 kr. á mánuði. Eldri borgari hafði samband við mig og skýrði mér frá stöðunni hjá sér.Hann hækkaði í 230 þúsund á mánuði frá TR um áramót ( um 23 þús).Auk þess hefur hann greiðslu úr lífeyrissjóði sem eru talsvert innan við 100 þúsund á mánuði.Maður þessi var með húsaleigubætur en vegna aukinna skerðingar frá áramótum sætti hann niðurskurði húsaleigubótanna,þannig að ríkisvaldið tók alla „kjarabótina“ af honum.Þannig fór um áramótakjarabótina hans.
Vaxtabætur (og barnabætur) lækkaðar um 57,7 milljarða!
Ákvæði um hærri vaxtabætur féllu úr gildi 1.janúar 2014.Alls lækkuðu vaxtabætur (og barnabætur) um 57,7 milljarða 2014.Framangreindar breytingar hafa leitt til þess, að fjölmargir aldraðir og öryrkjar hafa orðið fyrir mikilli kjaraskerðingu og miklu meiri en nemur þeimi litlu kjarabótum sem þeir hafa fengið.Sem dæmi má nefna,að lífeyrisþegi var með tæpar 200 þúsund í vaxtabætur en í dag fær hann engar vaxtabætur.Þær hafa verið þurrkaðar út.Þetta er veruleg kjaraskerðing hjá honum.
Það,sem hér hefur verið rakið um aukna skerðingu húsaleigubóta og lækkun vaxtabóta hefur valdið öldruðum verulegri kjaraskerðingu. Auk þess hafa komugjöld í heilbrigðisþjónustu aukist,meira að segja eftir að nýtt greiðsluþak tók gildi.i Dæmi um slíka hækkun : Eldri borgari þurfti að greiða 6600 kr. Fyrir viðtal við sérfræðing og blóðrannsókn eftir að nýja kerfið tók gildi. Það var 77% hækkun frá því hann fékk síðast slíka þjónustu.
Björgvin Guðmundsson
Birt í Fréttablaðinu 25.mai 2017
| Deila � Facebook |
N�justu pistlarnir: Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018 Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018 Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018 Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017 Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017 Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017 Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017 Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017 Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017 Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017 Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016 Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016 Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016 Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016 Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016 Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016 Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016 Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016 Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016 Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016 Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016 Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016 Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016 Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016 Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016 76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016 Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016 Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016 Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016 Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016
|
|