|
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjörmiðvikudagur, 16. nóvember 2016
| Ný ríkisstjórn fær það verkefni að bæta kjör aldraðra og öryrkja meira en nýsamþykkt lög um almannatryggngar gera ráð fyrir.Ég hef hamrað á því í blaðagreinum allt síðasta kjörtímabil, að kjör aldraðra og öryrkja væru óásættanleg; það yrði að bæta þau myndarlega. Aldraðir ættu að geta lifað með reisn ævikvöld sitt. Öryrkjar ættu einnig að fá mannasæmandi kjör.En stjórnarherrar fráfarandi ríkisstjórnar lömdu hausnum við steininn allt kjörtímabilið, vildu ekki viðurkenna að neitt væri að hjá eldri borgurum og öryrkjum. Ég sagði alltaf, að dropinn holaði steininn, það mundi nást einhver árangur að lokum.Það rættist í kjölfar mikils baráttufundar Félags eldri borgara r í Háskólabíó.Þá loks hreyfði rikisstjórnin sig, ákvað að hækka aðeins lífeyri þeirra lífeyrisþega , sem aðeins höfðu lífeyri frá almannatryggngum. Áður hafði Eygló félagsmálaráðherra þverneitað því, að þessi lífeyrir yrði hækkaður, sagði, að það væru svo fáir á „ stripuðum“ lífeyri! Ríkisstjórnin gaf einnig eftir í öðru máli ;ákvað að taka upp 25 þús króna frítekjumark vegna tekna lífeyrisþega.
Fyrsti forustumaður fráfarandi stjórnar, sem tók undir málflutning eldri borgara þess efnis, að kjör aldraðra væru ekki nógu góð, var Lilja Alfreðsdóttir nýkjörinn varaformaður Framsóknarflokkins. Hún ritaði grein í Fréttablaðið um mál eldri borgara og sagði : Fjöldi fólks (eldri borgara) býr við bág kjör og kvíðir framtíðinni.Hér er vandinn loks viðurkenndur en það er fyrsta skilyrðið fyrir því, að nægar kjarabætur séu veittar öldruðum.Mér kemur þessi jákvæða afstaða hennar ekki óvart, þar eð hún er dóttir Alfreðs Þorsteinssonar, fyrrverandi borgarfulltrúa og þegar við Alfreð sátum saman í borgarstjórn var hann ákveðinn félagshyggjumaður.Við áttum gott samstarf.
Það er mikið verk að vinna að koma kjörum aldraðra og öryrkja í rétt horf.Það á ekki aðeins að hækka lífeyri aldraðra og öryrkja þannig að þeir geti rétt framfleytt sér.Nei, hækka á lífeyrinn það myndarlega ,að lífeyrisþegar geti lifað með reisn og þurfi aldrei að kvíða morgundeginum.
Ekkert bendir til þess að draga muni úr misrétti í þjóðfélaginu.Þvert á móti berast fréttir af því að launamisrétti sé að aukast. Ákveðið hefur verið að stórhækka enn laun þingmanna og ráðherra. Laun ráðherra hækka um hálfa milljón og verða um 2 milljónir á mánuði og laun þingmanna verða 1,1 milljón.Laun aldraðra og öryrkja eiga hins vegar að vera 195-227 þúsund ke á mánuði eftir skatt . Þetta er siðlaust.
Björgvin Guðmundsson
viðskiptafræðingur
| Deila � Facebook |
N�justu pistlarnir: Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018 Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018 Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018 Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017 Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017 Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017 Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017 Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017 Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017 Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017 Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016 Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016 Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016 Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016 Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016 Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016 Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016 Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016 Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016 Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016 Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016 Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016 Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016 Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016 Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016 76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016 Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016 Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016 Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016 Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016
|
|