Barátta aldraðra fyrir bættum kjörum og betri aðbúnaði er nú að byrja að skila árangri. Barátta samtaka aldraðra og einstaklinga úr hópi eldri borgara hefur náð eyrum ráðamanna þjóðarinnar.Forseti Íslands,Ólafur Ragnar Grímsson,gerði þessi mál að umtalsefni í nýársávarpi sínu til þjóðarinnar.Hann sagði m.a.: “Það er til marks um siðmenningu hverrar þjóðar hvernig hún býr öldruðum ævikvöldið og gerir þeim kleift að njóta áranna,sem eftir eru,tryggir öryggi og aðhlynningu.” Einnig sagði forseti Íslands: “Aðkoma og aðbúnaður aldraðra þarf að færast einna fremst í forgangsröð.” Morgunblaðið tók undir þessi orð forseta í forustugrein 2.janúar sl. Stjórnmálaflokkarnir hafa allir fjallað um málefni aldraðra að undanförnu og hafa margir þeirra ályktað að gera þurfi átak til þess að bæta hag þeirra og aðbúnað.
Þurfum aðgerðir-ekki nefndir
Þess gætir að vísu nokkuð,að stjórnvöld hafi tilhneigingu til þess að vísa þessum brýnu málefnum til umfjöllunar nefnda. En það er engin þörf á slíku.Það er búið að kanna málefni aldraðra nægilega mikið á undanförnum árum.Samtök aldraðra hafa unnið mikið starf á því sviði,m.a. hagfræðingur samtakanna,Einar Árnason.Það liggja fyrir nægilegar upplýsingar um breytingu á kaupmætti ellilífeyris frá árinu 1988,sömuleiðis upplýsingar um skattlagningu tekna aldraðra frá sama tíma og miklar og ítarlegar upplýsingar liggja fyrir um hag og aðbúnað aldraðra í grannlöndum okkar.Einnig liggja frammi upplýsingar um kannanir Hagstofu Íslands á neysluútgjöldum almennings í landinu.Stjórnvöld hafa aðgang að öllum þessum upplýsingum. Þeim er því ekkert að vanbúnaði að leggja fram tillögur um breytingar á kjörum ellilífeyrisþega. Það sem nú liggur fyrir er að taka pólitíska ákvörðun um að bæta kjör aldraðra.Það þarf engar nefndarskipanir.
Nokkrar leiðir færar
Nokkrar leiðir eru færar,þegar taka á ákvörðun um að bæta kjör aldraðra: 1) Hækka má greiðslur aldraðra frá almannatryggingum þannig,að þær nái þeirri upphæð,sem þær ættu að vera í, miðað við að ekki hefði verið skorið á sjálfvirk tengsl milli lágmarkslauna og tryggingabóta. Landssamband eldri borgara telur að hækka þurfi mánaðargreiðslur um 17 þús. kr. til þess að ná þessu marki.2) Hækka má mánaðargreiðslur svo mjög,að þær dugi fyrir framfærslukostnaði aldraðra.Það mundi þýða a.m.k. 60 þús kr. hækkun á mánuði hjá einstaklingum, sem einungis hafa bætur frá almannatryggingum. 3) Afnema má tekjutengingu tryggingabóta aldraðra. 4) Gera má allan ellilífeyri skattfrjálsan.5) Byggja má fleiri hjúkrunarheimili fyrir aldraða og stórefla heimaþjónustu eldri borgara.
Nógir peningar til
Framangreindar tillögur má framkvæma strax,eina eða fleiri, ef vilji er fyrir hendi hjá ríkisstjórn og alþingi.Það er ekki nóg að tala fallega á hátíðarstundu.Það þarf framkvæmdir. Það eru nógir peningar til í þjóðfélaginu.Tekjuafgangur fjárlaga var það mikill, að það er þegar unnt að taka af honum drjúga upphæð til þess að hækka lífeyri aldraðra.Eldri borgarar munu fylgjast grannt með ráðamönnum á næstunni.
Björgvin Guðmundsson |