Eldri borgarar hafa ekki orðið varir við neina stefnubreytingu hjá stjórnvöldum í kjaramálum þeirra við tilkomu nýrrar ríkisstjórnar eftir alþingiskosningar sl. vor. Stefnan í kjaramálum aldraðra virðist alveg sú sama og hún var á meðan Framsókn fór með heilbrigðis-og tryggingaráðuneytið.Þetta eru gífurleg vonbrigði fyrir kjósendur og sérstaklega fyrir eldri borgara.Í fjárlagafrumvarpinu fyrir árið 2008 er ekki ein króna til þess að efna kosningaloforðin við aldraða frá því sl. vor. Þar er aðeins að finna framlög til þess að efna " samkomulagið" milli fyrri ríkisstjórnar og Landssambands eldri borgara.Mér finnst það nokkuð gróft hjá ríkisstjórninni að hundsa svo algerlega eldri borgara, að ekki skuli eins einasta króna í frumvarpinu til þess að efna öll kosningaloforðin, sem eldri borgurum voru gefin fyrir síðustu kosningar.
Hækka verður lífeyrinn strax
Ef ríkisstjórnin ætlar að reka af sér slyðruorðið verður hún að bæta kjör aldraðra strax en ekki síðar. Það þarf að hækka lífeyri eldri borgara strax um 30- 40 þúsund á mánuði, sem fyrsta áfanga í leiðréttingu á kjörum aldraðra. Lífeyrir aldraðra einstaklinga er í dag 126 þúsund á mánuði fyrir skatta,eða 113 þúsund eftir skatta.Ef þessi lífeyrir er hækkaður um 30 þúsund fer hann í 156 þúsund á mánuði fyrir skatta en ella í 166 þúsund fyrir skatta ef hækkunin væri 40 þúsund á mánuði.Eftir sem áður væri þetta mjög lágur lífeyrir. Þetta verður ekki mannsæmandi fyrr en lífeyririnn fer í 210 þúsund á mánuði fyrir skatta eða sem svarar meðaltals neysluútgjöldum einstaklinga á mánuði.
Allar staðreyndir liggja fyrir
Það hafa verið skipaðar nefndir til þess að fjalla um þessi mál en það var engin þörf
á því.Allar staðreyndir liggja fyrir. Það er búið að athuga þessi mál fram og aftur á undanförnum misserum. Það er algengt í stjórnsýslunni í dag að skipa nefndir um alla mögulega hluti og eins þó engin þörf sé á því. Stundum er þetta gert til þess að tefja málin. En stundum er það gert af gömlum vana. Einn ráðherra á fyrri árum lét verkin tala og fór ekki þá leið að setja öll mál í nefnd. Það var Ingólfur Jónsson frá Hellu. Hann framkvæmdi hlutina strax. Ég vildi sjá fleiri ráðherra vinna þannig. Og þannig ætti Jóhanna Sigurðardóttir að vinna. Hún hefur flutt tillögur hvað eftir annað á alþingi um bætt kjör aldraðra og látið framkvæma margvíslegar athuganir í tengslum við þær. Hún þarf því ekki að láta athuga málin nánar. Hún þarf að framkvæma.
Ég legg til að Jóhanna og Guðlaugur Þór, heilbrigðisráðherra komi sér saman um fyrstu aðgerðir til leiðréttingar á kjörum aldraðra: 40 þúsund króna hækkun á lífeyri aldraðra einstaklinga strax.
Sýnið, að það sé unnt að leiðrétta kjör aldraðra með sama hraða og lífeyri ráðherra og þingmanna.
Björgvin Guðmundsson
Birt í Morgunblaðinu 22.nóvember 2007
|