|
Ríkisstjórnin svíkur aldraðaföstudagur, 25. október 2013
|
Stærsta kosningaloforðið, sem núverandi stjórnarflokkar gáfu öldruðum og öryrkjum í síðustu þingkosningum,var að kjaragliðnunin, sem þessir hópar urðu fyrir á krepputímanum,yrði leiðrétt strax kæmust þeir til valda.Á landsfundi Sjálfstæðisflokksins fyrir kosningar 2013 var eftirfarandi samþykkt: Ellilífeyrir sé leiðréttur strax til samanburðar við þær hækkanir, sem orðið hafa á lægstu launum síðan í ársbyrjun 2009.Svipuð ályktun var samþykkt á flokksþingi Framsóknar.Þar var eftirfarandi samþykkt: Lífeyrir aldraðra og öryrkja verði hækkaður vegna kjaraskerðingar þeirra (og kjaragliðnunar) á krepputímanum.Með kjaragliðnun er átt við, að lífeyrir aldraðra og öryrkja hefur ekki hækkað samsvarandi og kaup láglaunafólks en tilskilið er í lögum, að svo skuli vera.
Kjaragliðnunin ekki leiðrétt í fjárlagafrumvarpinu
Þess var beðið með nokkurri eftirvæntingu, hvort fjárveiting til leiðréttingar á kjaragliðnun lífeyrisþega yrði í fjárlagafrumvarpinu, einkum þar sem formaður Sjálfstæðisflokksins var orðinn fjármálaráðherra og samþykkt landsfundar flokksins um leiðréttingu strax var afdráttarlaus.En það var ekki að finna eina krónu í frumvarpinu til leiðréttingar á umræddri kjaragliðnun.Það er því ljóst, að ríkisstjórnin ætlar að svíkja aldraða um leiðréttingu á lífeyrinum.
Lífeyrir þarf að hækka um 20%
Hækka þarf lífeyrinn um a.m.k. 20% til þess að leiðrétta hann vegna kjaragliðnunarinnar.Kaup láglaunafólks hefur hækkað um 40% frá ársbyrjun 2009 en lífeyrir aldraðra ( þeirra,sem búa einir og hafa aðeins tekjur frá TR) hefur aðeins hækkað um 17% á sama tíma.Öryrkjabandalag Íslands telur að hækka þurfi lífeyri öryrkja meira en 20% til þess að leiðrétta að fullu vegna kjaraskerðingar krepputímans.Með því að hækka lífeyri um 20% nú væri aðeins verið að hækka hann í dag, mörgum árum síðar, til samræmis við hækkun,sem láglaunafólk hefur fengið fyrir mörgum árum og mest á fyrri hluta krepputímans.Í því fælist hins vegar engin leiðrétting fyrir liðinn tíma.Sumir frambjóðendur stjórnarflokkanna gáfu mjög róttækar yfirlýsingar um að leiðrétta þyrfti kjör aldraðra og öryrkja til baka.
Aðeins hluti skerðinga afturkallaður
Ríkisstjórnin afturkallaði á sumarþinginu tvær skerðingar á kjörum lífeyrisþega: Frítekjumark vegna atvinnutekna var hækkað á ný úr 40 þúsund á mánuði í 120 þúsund á mánuði og þeir,sem misstu grunnlífeyri sinn árið 2009 vegna greiðslna úr lífeyrissjóði, fengu hann á ný.Þessi afturköllun var góð svo langt, sem hún náði en hún var því marki brennd, að hún kom aðeins þeim lífeyrisþegum til góða,sem höfðu tiltölulega góð kjör svo sem góðan lífeyrissjóð.Ekkert var gert fyrir þá lífeyrisþega, sem illa voru staddir.Til dæmis afturkallaði sumarþingið ekki kjaraskerðingu þeirra,sem urðu fyrir barðinu á því, að skerðingarhlutfall tekjutryggingar var hækkað 2009 úr 38,35% í 45%.Við það urðu 28000 lífeyrisþegar fyrir kjaraskerðingu.Fyrrverandi ríkisstjórn tekur hins vegar ómakið af núverandi stjórn í því efni: Lögin um skerðingarhlutfall tekjutryggingar falla sjálfvirkt úr gildi um næstu áramót.Þau voru tímabundin.
Landssamband eldri borgara og Félag eldri borgara í Reykjavík hafa ítrekað ályktað að leiðrétta verði lífeyrinn vegna kjaragliðnunar krepputímans.Þess er krafist, að staðið verði við kosningaloforðið í því efni og að það verði gert strax eins og lofað var fyrir kosningar.Það hefur verið níðst á kjörum lífeyrisþega.Nú er komið að því að leiðrétta kjörin.
Björgvin Guðmundsson
formaður kjaranefndar Félags eldri borgara
í Reykjavík.
Birt í DV 25.oktober 2013
| Deila � Facebook |
N�justu pistlarnir: Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018 Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018 Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018 Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017 Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017 Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017 Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017 Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017 Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017 Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017 Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016 Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016 Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016 Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016 Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016 Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016 Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016 Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016 Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016 Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016 Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016 Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016 Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016 Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016 Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016 76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016 Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016 Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016 Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016 Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016
|
|