|
Heimahjúkrun er undirmönnuðlaugardagur, 19. apríl 2014
| Heimahjúkrun hefur mjög mikilvægu hlutverki að gegna.Hún á að veita öldruðum og sjúkum aðhlynningu í heimahúsum. Það er yfirlýst markmið stjórnvalda, ríkis og sveitarfélaga, að æskilegt sé, að eldri borgarar og sjúklingar séu sem lengst í heimahúsum í stað þess að fara fyrr á hjúkrunarheimili eða á spítala. Þessu markmiði er hvað eftir annað lýst af ráðamönnum, einkum við hátíðleg tækifæri; enda er það miklu ódýrara fyrir samfélagið, að eldri borgarar séu áfram í heimhúsum þó heilsan sé farin að gefa sig. Hver dagur á hjúkrunarheimili eða á annari sjúkrastofnun er mjög dýr. Þegar þetta er haft í huga, er það mjög undarlegt, að stjórnvöld skuli svelta heimahjúkrun fjárhagslega með þeim afleiðingum, að heimahjúkrun er stórlega undirmönnuð. Það vantar t.d. mikið á, að nægilega margt hjúkrunarfólk vinni hjá heimahjúkrun í Reykjavík. Þetta finna eldri borgarar, sem njóta þjónustunnar, vel. Fjármagn til heilsugæslunnar í Reykjavík hefur verið skorið niður í ár með þeim afleiðingum m.a. að fækka þarf hjúkrunarfræðingum.
Heimaþjónustan rekur heimahjúkrunina
Í ársbyrjun 2009 tók velferðarsvið Reykjavíkur við rekstri heimahjúkrunar í höfuðborginni samkvæmt þjónustusamningi við velferðarráðuneytið. Heimaþjónusta Reykjavíkur rekur heimahjúkrunina.Hefur félagsleg heimaþjónusta og heimahjúkrun verið sameinuð undir einum hatti. Heimaþjónusta Reykjavíkur ber ábyrgð á allri heimahjúkrun í Reykjavík og á Seltjarnarnesi en einnig er hún ábyrg fyrir heimahjúkrun um kvöld og helgar í Mosfellsbæ og næturþjónustu fyrir allt höfuðborgarsvæðið. Markmið heimaþjónustunnar er að gera þeim, sem hennar njóta, kleift að búa heima þrátt fyrir veikindi eða heilsubrest. Þjónustan skal veitt í náinni samvinnu við sjúklinginn sjálfan og aðstandendur hans. Um markmið heimaþjónustu og heimahjúkrunar segir ennfremur: Heimahjúkrun sinnir m.a. einstaklingum, sem þarfnast sérhæfðrar hjúkrunar og víðtækrar hjúkrunar daglega eða oft á dag.Heimahjúkrun er ekki aðeins fyrir eldri borgara heldur fyrir fólk á öllum aldri, sem á við heilsubrest eða skerta getu til daglegra athafna að stríða.
Ríkið greiðir kostnaðinn við heimahjúkrun
Ríkið greiðir kostnaðinn við heimahjúkrun.Fyrstu 3 ár þjónustusamningsins greiddi ríkið alls 2,8 milljarða fyrir heimahjúkrun í Reykjavík.Undanfarin ár hefur kostnaður við heimahjúkrun verið í kringum 1 milljarð á ári. Árið 2011 nam þessi kostnaður 992 milljónum kr. Síðasta ár var kostnaðurinn 1116 milljónir kr. Í ár verður kostnaðurinn svipaður; hækkar aðeins sem svarar verðlagshækkunum og tæplega þó. 296 starfsmenn sinna heimahjúkrun á þessu ári, einkum hjúkrunarfræðingar og sjúkraliðar.Um 1000 heimili á Stór-Reykjavíkursvæðinu njóta heimahjúkrunar að jafnaði.Tvöfalt fleiri einstaklingar fá þjónustuna.Á fjórða hundrað starfsmenn sinna félagslegri heimaþjónustu. Á fjórða þúsund heimili njóta hennar.Kostnaður við félagslega heimaþjónustu er talsvert meiri en kostnaður við heimahjúkrun eða 1589 milljónir kr. sl. ár.
Of mikill hraði í heimahjúkrun
Hjúkrun er mjög vandasöm. Það er ekki unnt að vinna hana í flýti.En fjárskortur og undirmönnun heimahjúkrunar í Reykjavík hefur leitt til þess, að reynt er að hraða vinnu við hjúkrun í heimahúsum sem mest. Það er slæm þróun, sem kemur óhjákvæmilega niður á gæðum þjónustunnar og leiðir jafnvel til þess að þjónusta er skorin niður. Það samræmist ekki markmiðinu um að stuðla að því, að eldri borgarar og sjúklingar geti verið sem lengst í heimahúsum.Því miður virðist sem hugur fylgi ekki alltaf máli, þegar stjórnmálamenn gefa yfirlýsingar um að vinna eigi að því, að aldraðir og sjúkir geti búið sem lengst í heimahúsum. Það er hvergi nærri nóg gert til þess að tryggja það, að unnt sé að framkvæma þessar hástemmdu yfirlýsingar.Hér þarf því að verða breyting á. Það verður að tryggja nægilegt fjármagn í heimahjúkrun.Það er miklu ódýrara fyrir samfélagið en að senda eldri borgara og sjúklinga fyrr á hjúkrunarheimili. Ég vil því skora á ríkisstjórnina, að auka fjármagn til heimahjúkrunar. Það mun borga sig fyrir ríkissjóð, þegar til lengdar lætur.Heilbrigðisráðherra,Kristján Þór Júlíusson og fjármálaráðherra,Bjarni Benediktsson, þurfa að taka höndum saman í þessu máli til þess að tryggja heimahjúkrun nægilegt fjármagn.
Björgvin Guðmundsson
fyrrv. borgarfulltrúi
Birt í DV 10.apríl 2014
| Deila � Facebook |
N�justu pistlarnir: Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018 Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018 Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018 Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017 Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017 Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017 Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017 Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017 Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017 Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017 Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016 Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016 Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016 Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016 Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016 Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016 Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016 Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016 Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016 Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016 Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016 Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016 Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016 Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016 Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016 76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016 Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016 Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016 Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016 Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016
|
|